Færsluflokkur: Bloggar
2.8.2007 | 15:29
Hef ekki neitt að gera
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.8.2007 | 14:57
1.ágústar peningaeyðsluna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.7.2007 | 19:43
Loksins
Kláraði Vinnuskólann í dag. Þá er skólinn næst á dagskrá. Því miður fyrir mig eru samt til fólk sem hika ekki við að skila ekki lánspening sem ég hef lánað og eru þar af leiðandi svindlarar og þjófar. Er að hugsa um að birta listann yfir öllum sem skulda mér einhverntímann. Annars hef ég ekkert bloggað, ekki nennt að gera það.
Fréttir hafa verið mismunandi en samt hefur sumt merkilegt gerst. Í fyrsta lagi eru umhverfisrugludallar(Mótmælendur Saving Iceland) komnar. Slæm tíðindi að svona rugl fær staðist. Ekkert svo mikið annað sem kemur upp, en það er bara venjulegt um sumarið.
Næsta mál á dagskrá er að kaupa mér skólabækur. 1.ágúst þegar ég fæ peningurinn minn fer ég beint út í Office1 og ná í nokkrar bækur áður en fjöldinn kemur.
Fór þar einmitt til að ná í Harry Potter og ég skil ekki fólk sem voru í langat raðir við Nexus. Hvað er merkilegt við Harry Potter stemning? Bara bók að mínu mati.
Kom 10:20 um kvöldið og var svona 10. í röðinni. Las það svo kl.6 í fyrramálið og kláraði 10:15 um morguninn.
Ekkert meira að segja í bili.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2007 | 14:32
Þá er þetta komið á hreint
Rafræna innrituninn gekk vel og ég er kominn í MR. Er sáttur með það.
Svo er ég annnars í Vinnuskóla Reykjavíkur, sem er bara leið til að fá peninga og að eyða plöntur...
Hef annars ekkert að gera.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2007 | 19:44
Hreyfing að fullu
Þegar ég byrjaði hér ætlaði ég einungis að skýra frá hugmyndum mínum en ég hef ákveðið að færa bara heila draslið yfir hér og segj frá ýmsum fréttum úr lífi mínu.
Ég tók öll samræmdu prófin, með meðaleinkunn upp á 8,92(4x8,5+9,5 í ensku+10 í stærðfræði) Ætti þá að komast inn í MR.
Fékk boð um að taka þátt í Landsmótinu í skólaskák sem var um helgina síðastliðið. Fékk þar 8/11 og var einn í þriðja sæti, en það vantaði flestar sterkustu skákmenn á þessum aldri.+
Kláraði loksins skólinn í gær, og það verður örugglega spennandi að komast inn í menntaskóla.
Nóg í bili
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.5.2007 | 17:38
Nýtt ríkisstjórn mynduð---fyrsta mál
Nú hefur nýtt ríkisstjórn D og S komist til valda. Framundan eru 4 ár(ef allt gengur eftir) með þessu stjórni. Það sem gerist á þessum 4 árum mun sýna hvort að þetta ríkisstjórn sé nógu hæf til að stjórna landinu.
En fyrstu mál eru komin upp.
A: Flateyri
Þetta er eitt af vandamálunum sem koma upp með þessu kvótakerfi. Ég hef ekkert sérstaka skoðun á kerfinu en ég get alveg séð fyrir mig vandamálin sem gætu komið upp ef þetta verður þróunin. Helst væra að stöðva þetta. En það er augljóst að kvótakerfið á eftir að halda, því að Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að halda sér í það.
B: Norðlingaorkuveitan
Samfylkingarfólk í ríkisstjórninni vilja meina að það sem skrifað er í stefnuyfirlýsingin þýðir að ekkert verði að þessu. Sjálfstæðisflokkurinn segir að stefnuyfirlýsingin stöðvi ekki orkveitunni. Landsvirkjun segist eiga landið(held ég). Ef svo er rétt held ég að ef orkuveitan verði ekki byggð, ætti að kaupa landið tilbaka frá Landsvirkjunni. Þá verða flestir sáttir
Nú er ég loksins búinn að senda menntaskólaumsókn mnni. Ef allt gengur að óskum verð ég kominn í MR næsta haust.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.5.2007 | 03:06
Til Danmerkur skal það vera
í 4x daga. Og á skólaferðalagi. Sjáumst vonandi aftur eftir þessari ferð og vona ég innilega að ný ríkisstjórn hefur verið myndað þá.
PS: Aðalfundur Skáksambandsins var haldinn og það telst til frétta að ný meirihluti stjórnendur eru konur. Mér finnst það ekkert sérstakt sjálfur. Þegar góðar einstaklingar eru valdar ÆTTI kyn ekki að skipta máli. Svo það ætti alls ekii að vera fréttnæmt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.5.2007 | 18:50
Ný stjórn myndað
Og alveg sérsniðað eftir auglýsingaherferð Sjálfstæðismanna. Nýir tímar(nýtt ríkisstjórn) á traustum grunni(Sjálfstæðisflokkur).
Framsókn er farið að væla, og það sést greinilega að þeir eru komnir í stjórnarandstöðunni. Allt sem stjórnarandstaðan gerir er að væla. Enda er það hlutverk stjórnarandstöðunnar.
Er búin að komast að þeirri niðurstöðu(bæði innlendis og erlendis) að ég er nokkurnveginn miðjumaður í fyllstu merkingu. Í Bifrastarkönnuninni var ég mest sammála Framsókn(um 40%), en var með um 20% stuðning hjá öllum flokkum. Í political compass könnunin var ég -0,94;1-sem er 1 hnit frá direct center. Málið er að mínar skoðanir sæmræmist ekki neinu sérstakur flokkur heldur skiptist á víði og dreifð.
Það ætti virkilega að gera flokk fyrir fólki eins og ég sem eru með sérskoðanir...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2007 | 21:39
Auglýsingar fyrir kosninga
Nú kemur ofurálitið mitt á hina ýmsu auglýsingar sem komu fram fyrir kosningunum.
D: Á stætisskýlum, með einhæfar og litlausar auglýsingar. Blátt og hvítt var liturinn. Ekkert sérstakt um þá að segja
B: Sá ekki svo mikið með þeim, enda horfi ég ekki á sjónvarp yfirleitt. Auglýsingarnar virkuðu frekar rugluð á mig. Sérstaklega þegar ég fór í bíó og sá mesta snilld/rugl auglýsing ever hjá B. Þetta með netlögreglan. Fyrst ber að nefna að rauði karl/græni karl hljómaði illa að mínu mati. En netlögregludæmið var bara fyndin. Röddin hljómaði eins og ónefndur Toyota auglýsing.
S: Venjulegt, sá ekkert sérstakt við þeirra auglýsingar.
V: Veit ekki hvað ég á að segja. Sá sumar auglýsingar þeirra, töluðu mikið um kvenfrelsi. Mér finnst kvenfrelsi(sem var notuð mikið) vera vitlaust orðuð. Ætti miklu frekar að nota kvenréttindi.
F: Burt með óréttlæti! Þarf ég að segja meira. Það var allt auglýsingaherferð frjálslyndra.
Í: Kjóstu með hjartanu? Nei takk, ég myndi miklu frekar láta skynsemin ráða... Kjósa með hausinn og það allt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2007 | 14:41
Vandamál
Af hverju er allt flokksbundið. Fólk hefur hitt og þetta skoðun en allt ræðst af flokknum sem þú ert í. Það er sumt sem má bara ekkert segja, því að persónan sem stjórnar öllu er flokkurinn, sem er ekki lifandien hefur samt meiri vald heldur en annað fólk.
Það þarf virkilega að leiðrétta þennan vanda. Helst að stofna flokk án skoðana fyrir einstaklinga sem vilja hafa sín mál án þess að pólitík og flokkurinn ráði. Vonandi verður þetta gert í framtíðinni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)